Stóra upplestrarkeppnin í Suðurnesjabæ og Vogum 2026
Stóra upplestrarkeppnin var haldin við hátíðlega athöfn þann 10.mars í Gerðaskóla þar sem Gerðaskóli, Sandgerðisskóli og Stóru-Vogaskóli tóku þátt. Keppnin hófst formlega á degi íslenskrar tungu, þann 16.nóvember og lauk í mars við hátíðlega athöfn. Þetta er þrítugasta árið sem keppnin er haldin um allt land. Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Skólum hefur einnig þótt þetta vera góð leið til þess að auka lestur nemenda og er þetta frábært tækifæri fyrir kennara til þess að rækta talað mál á fjölbreyttan hátt.
Vandvirkni, ánægja og virðing eru kjörorð keppninnar. Nemendur fá þjálfun í að vanda flutning og framburð íslensks máls, læra að njóta þess að flytja texta og ljóð sjálfum sér og öðrum til ánægju. Stóra upplestrarkeppnin eflir sjálfstraust og framkomu nemenda. Áhersla er lögð á líkamsstöðu, raddstyrk, framburð, hraða, túlkun og samskipti við áheyrendur.
Fyrir lokakeppnina höfðu farið fram keppnir í hverjum skóla þar sem valdir voru þrír fulltrúar úr hverjum skóla til þátttöku. Keppendur í ár voru Bergrún Embla Hlynsdóttir, Jónas Ingi Jónasson og Óðinn Þór Brynjarsson úr Sandgerðisskóla, Gabríela Ósk Sequeira Gomes, Ingunn María Einarsdóttir og María Ásmundsdóttir úr Stóru-Vogaskóla og Eva Kristín Einarsdóttir, Guðlaug Helga Sigurðardóttir og Hafþór Ingvi Brynjarsson úr Gerðaskóla.
María Ásmundsdóttir úr Stóru-Vogaskóla sigraði keppnina í ár. Bergrún Embla Hlynsdóttir úr Sandgerðisskóla var í 2.sæti og Eva Kristín Einarsdóttir úr Gerðaskóla í 3.sæti. Allir keppendur fengu viðurkenningu, bókina sem lesið var upp úr og rós fyrir þátttöku ásamt því að sigurvegarar fengu peningagjöf.
Í ár fluttu nemendur brot úr bókinni, Fjársjóðsleit í Granada, eftir Ólaf Pál Jónsson ásamt því að flytja tvö ljóð, ljóðaþátt um fugla í íslenskri náttúru og ljóð að eigin vali. Alexandra Ibhade Oriri Lastra og Eliza Zelaznicka úr Sandgerðisskóla, Jakub Jan Drazkowski úr Stóru-Vogaskóla og Aleksander Cielesz úr Gerðaskóla sáu um tónlistarflutning og gerðu það með glæsibrag. Vinningshafar frá síðasta skólaári, Elianna Rós Viray og Ásþór Fannar Hilmarsson, sáu um að kynna rithöfund hátíðarinnar og ljóðaþáttinn. Allir þátttakendur eiga hrós skilið fyrir góðan og fallegan upplestur, framkomu og hugrekki.
Mennta-og tómstundasvið Suðurnesjabæjar styrkir og heldur utan um skipulag Stóru upplestrarkeppninnar.
Hér má sjá myndir frá keppninni.